15 June 2026
/
Embassy of Iceland in Ottawa
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið
Atkvæðagreiðslan fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026, en utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður opin frá 27. júlí 2026. Hægt verður að kjósa í sendiráðinu og hjá ræðismönnum þar sem það á við. Nánari upplýsingar um staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag verða kynntar þegar nær dregur.
Af þessu tilefni hefur utanríkisráðuneytið opnað sérstaka upplýsingasíðu á íslensku og ensku sem verður uppfærð reglulega eftir því sem nýjar upplýsingar berast. Sendiráðið mun sömuleiðis veita frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir, en í millitíðinni hvetjum við öll til að skoða upplýsingarsíðurnar, sem eru í athugasemdum hér að neðan.